Kvöld- og helgar barnfóstrur með reynslu í barnagæslu og umönnun
Evening babysitters with professional childcare experience. Press here for english.Passa.is hjálpar þér að endurvekja félagslífið!Hjá okkur getur þú fundið vinalega og reynslumikla kvöld- og helgar barnfóstru, jafnvel með stuttum fyrirvara. Við einsetjum okkur að taka allar barnfóstrur í persónuleg viðtöl og förum ítarlega yfir öll gögn og meðmæli. Hjá Passa finnur þú aðeins barnfóstrur sem hafa góða reynslu í uppeldi og gæslu barna.
Hvernig virkar passa.is?Um leið og þú hefur skráð þig á passa.is getur þú bókað kvöldpössun með einu símtali í síma 770 7100 eða þú getur sent mail á
telma@passa.is. Í framhaldinu höfum við samband við áreiðanlega barnfóstru sem hefur farið í gegnum viðtalsferlið og staðist kröfur Passa. Einnig reynum við að fá barnfóstru sem að býr nálægt þér. Við reynum alltaf að bóka fyrst barnfóstru sem þú hefur hitt áður eða óskar helst eftir.
Um leið og við höfum útvegað barnfóstru staðfestum við bókunina og segjum þér hver er væntanleg og látum þig fá frekari upplýsingar um reynslu viðkomandi. Venjulega er bókun staðfest með sms innan nokkurra klukkustunda frá bókun. Á pössunardeginum sjálfum sjáum við svo til þess að bæði þú og barnfóstran séu minnt á bókunina með sms skilaboði.
Hótelpassanir.Passa.is býður upp á barnagæslu á hótelum/gistiheimilum eða orlofshúsum. Ertu í bænum og langar að skreppa út þegar börnin eru sofnuð? Eða ertu á leið í barnlaust brúðkaup eða afmæli? Endilega hafðu samband og sjáðu hvað passa.is býður upp á.
Frekari upplýsingar...Vinsamlegast smelltu á spurningar og svör til að lesa algengustu spurningar og svör frá foreldrum til okkar. Svo getur þú alltaf hringt í okkur í síma 770 7100. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 9:30-18 og 10-17 á laugardögum. Á öðrum tímum sjáum við til þess að fyrirspurnum sé svarað eins fljótt og auðið er.